Alma - Elliðabraut 8

Elliðabraut 8

Bóka skoðun

Íbúð

Tegund

110 Reykjavík

Staðsetning

51m2

Stærð

2

Herbergi

267.000 kr.

Verð á mánuði

Strax

Laus frá

Bóka skoðun

Glæný og stórglæsileg tveggja herbergja 47,6 fm íbúð á annari hæð með sérinngangi.
Gengið er inn í anddyri með stórum og góðum fataskáp. 6 fm baðherbergi með flísum á gólfi og góðri sturtu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús og stofa í sameiginlegu rými, 18 fm þar sem gengið er út á 5 fm svalir sem snúa í norðvestur. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél er í eldhúsi.
Frá stofu er komið inn í svefnherbergi, 11 fm með góðu skápaplássi. Parket er á gólfum. Íbúðin er leigð út með gardínum í gluggum.
Geymsla, 4 fm fylgir íbúðinni. Bílastæði í kjallara fylgir ekki íbúðinni.

Reykingar og dýrahald er ekki leyfilegt í íbúðinni.

Leiguverð er kr. 267.000.- á mánuði. Hiti og hússjóður er innifalinn í leiguverði en rafmagn greiðist af leigutaka. Farið er fram á tveggja mánaða tryggingu.

Áhugasamir eru hvattir til þess að bóka skoðun með því að smella á hnappinn hér að ofan.

Endilega hafið samband við okkur á al@al.is ef einhverjar spurningar vakna.

Hlökkum til að heyra frá ykkur!

Elliðabraut 8, 110 Reykjavík

Fjölbýlishús

51m2· 2 herbergi

Laus núna

Ásett verð

267.000 kr.

Hverfið

Norðlingaholt

Þar sem Elliðaárdalur endar tekur Norðlingaholtið við. Rauðavatn og áin Bugða eru falleg útivistarsvæði sem íbúar holtsins deila með öðrum borgarbúum. Heiðmörk er einnig skammt frá þar sem Rauðhólar mynda einstakan bakgrunn fyrir ævintýralega útivist. Bláfjöllin eru þar að auki innan seilingar og því er hægðarleikur að stunda fjölbreytta útivist árið um kring. Norðlingaskóli er framsækinn skóli sem leggur mikinn metnað í að nemendur skólans þroskist og komi þaðan sem sjálfstæðir og lífsglaðir einstaklingar. Hverfið er tiltölulega nýtt og er enn í uppbyggingu.

Bóka skoðun