Alma - Elliðabraut 6

Elliðabraut 6

Sækja um íbúð

Íbúð

Tegund

110 Reykjavík

Staðsetning

68m2

Stærð

2

Herbergi

320.000 kr.

Verð á mánuði

Strax

Laus frá

Glæný og stórglæsileg tveggja herbergja, 64 fm íbúð á annari hæð með sérinngangi.
Gengið er inn í anddyri, 6 fm með góðum fataskáp. Baðherbergi, 5,5 fm með flísum á gólfi og góðri sturtu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús og stofa í sameiginlegu rými, 31 fm þar sem gengið er út á góðar 5 fm svalir sem snúa í norðvestur. Frá stofu er komið inn í svefnherbergi, 12 fm með góðu skápaplássi. Parket er á gólfum. Íbúðin er leigð út með gardínum í gluggum.
Geymsla, 4,7 fm fylgir íbúðinni. Bílastæði í kjallara fylgir ekki íbúðinni.

Reykingar og dýrahald er ekki leyfilegt í íbúðinni.

Leiguverð er kr. 320.000.- á mánuði. Hiti og hússjóður er innifalinn í leiguverði en rafmagn greiðist af leigutaka. Farið er fram á tveggja mánaða tryggingu.

Áhugasamir eru hvattir til þess að bóka skoðun með því að senda tölvupóst á al@al.is.

Ef þú hefur áhuga á að sækja um íbúðina biðjum við þig að senda okkur umsókn með því að smella á hnappinn hér að ofan.

Endilega hafðu samband við okkur á al@al.is ef einhverjar spurningar vakna.

Hlökkum til að heyra frá þér.

Elliðabraut 6, 110 Reykjavík

Fjölbýlishús

68m2· 2 herbergi

Laus núna

Ásett verð

320.000 kr.

Hverfið