Alma - Elliðabraut 6

Elliðabraut 6

Sækja um íbúð

Íbúð

Tegund

110 Reykjavík

Staðsetning

45m2

Stærð

2

Herbergi

270.000 kr.

Verð á mánuði

Strax

Laus frá

Sækja um íbúð

Glæný og stórglæsileg tveggja herbergja, 45 fm íbúð á þriðju hæð við Elliðabraut 6 í Norðlingaholti.
Eldhús og stofa í sameiginlegu rými. Frá stofu er komið inn í svefnherbergi, með góðu skápaplássi. Parket er á gólfum. Baðherbergi með flísum á gólfi og góðri sturtu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Athugið að ekki er hægt að skrá lögheimili á íbúðina.
Reykingar og dýrahald er ekki leyfilegt í íbúðinni.

Leiguverð er kr. 270.000.- á mánuði. Hiti og hússjóður er innifalinn í leiguverði en rafmagn greiðist af leigutaka. Farið er fram á tveggja mánaða tryggingu.

Áhugasamir eru hvattir til þess að bóka skoðun með því að senda tölvupóst á al@al.is.

Ef þú hefur áhuga á að sækja um íbúðina biðjum við þig að senda okkur umsókn með því að smella á hnappinn hér að ofan.

Endilega hafðu samband við okkur á al@al.is ef einhverjar spurningar vakna.

Hlökkum til að heyra frá þér.

Elliðabraut 6, 110 Reykjavík

Fjölbýlishús

45m2· 2 herbergi

Laus núna

Ásett verð

270.000 kr.

Hverfið

Norðlingaholt

Þar sem Elliðaárdalur endar tekur Norðlingaholtið við. Rauðavatn og áin Bugða eru falleg útivistarsvæði sem íbúar holtsins deila með öðrum borgarbúum. Heiðmörk er einnig skammt frá þar sem Rauðhólar mynda einstakan bakgrunn fyrir ævintýralega útivist. Bláfjöllin eru þar að auki innan seilingar og því er hægðarleikur að stunda fjölbreytta útivist árið um kring. Norðlingaskóli er framsækinn skóli sem leggur mikinn metnað í að nemendur skólans þroskist og komi þaðan sem sjálfstæðir og lífsglaðir einstaklingar. Hverfið er tiltölulega nýtt og er enn í uppbyggingu.

Íbúðir til leigu í hverfinu

Heimilisfang: Tegund: Stærð: Leiga: Herbergi: Skráð: Tegund leigu:
Elliðabraut 6 Fjölbýli 45m2 275.000 kr. 2 herbergi 30. október 2023 Langtíma
Elliðabraut 6 Fjölbýli 45m2 275.000 kr. 2 herbergi 30. október 2023 Langtíma

Sækja um íbúð