Íbúð
Tegund
110 Reykjavík
Staðsetning
84m2
Stærð
3
Herbergi
370.000 kr.
Verð á mánuði
Strax
Laus frá
Glæný og stórglæsileg þriggja herbergja, 79,5 fm íbúð á annari hæð. Gengið er inn í íbúðina er úr sameiginlegum stigagangi.
Komið er inn í sameiginlegt rými, stofu og eldhús. Góður fataskápur er við inngang íbúðarinnar.
Eldhús og stofa í sameiginlegu rými, 35 fm þar sem gengið er út á 8 fm svalir sem snúa í norðvestur inn í port hússins. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél er í eldhúsi. 6 fm baðherbergi með flísum á gólfi og góðri sturtu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Tvö svefnherbergi,13 fm hjónaherbergi með góðum fataskápum og 1 fm svölum. Minna herbergið er 10 fm með góðum fataskáp. Íbúðin er leigð út með gardínum í gluggum.
Góð lofthæð er í íbúðinni.
Geymsla, 5 fm fylgir íbúðinni.
Reykingar og dýrahald er ekki leyfilegt í íbúðinni.
Leiguverð er kr. 370.000.- á mánuði. Hiti er innifalinn í leiguverði en rafmagn greiðist af leigutaka.
Áhugasamir eru hvattir til þess að bóka skoðun með því að senda tölvupóst á al@al.is.
Ef þú hefur áhuga á að sækja um íbúðina biðjum við þig að senda okkur umsókn með því að smella á hnappinn hér að ofan.
Endilega hafðu samband við okkur á al@al.is ef einhverjar spurningar vakna.
Hlökkum til að heyra frá þér.
Fjölbýlishús
84m2· 3 herbergi
Laus núna
Ásett verð
370.000 kr.