Glæsileg tveggja herbergja, 55 fm íbúð á jarðhæð með sérinngangi.
Gengið er inn í anddyri með góðum fataskáp. 5 fm baðherbergi með flísum á gólfi og góðri sturtu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús og stofa í sameiginlegu rými, 21 fm þar sem gengið er út á góða verönd í norðvestur. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél er í eldhúsi. Frá stofu er gengið inn í svefnherbergi, 10 fm með góðu skápaplássi. Parket er á gólfum. Íbúðin er leigð út með gardínum í gluggum.
Geymsla, 4 fm fylgir íbúðinni. Bílastæði í kjallara fylgir ekki íbúðinni.
Reykingar og dýrahald er ekki leyfilegt í íbúðinni.
Leiguverð er kr. 306.000.- á mánuði. Hiti og hússjóður er innifalinn í leigu en rafmagn greiðist af leigutaka. Farið er fram á tveggja mánaða tryggingu.
Áhugasamir eru hvattir til þess að bóka skoðun með því að senda tölvupóst á al@al.is.
Ef þú hefur áhuga á að sækja um íbúðina biðjum við þig að senda okkur umsókn með því að smella á hnappinn hér að ofan.
Endilega hafðu samband við okkur á al@al.is ef einhverjar spurningar vakna.
Hlökkum til að heyra frá þér.