Alma - Dalsbraut 12

Dalsbraut 12

Íbúð

Tegund

260 Reykjanesbæ

Staðsetning

98m2

Stærð

4

Herbergi

355.000 kr.

Verð á mánuði

Strax

Laus frá

Laus til leigu 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð með sér inngang við Dalsbraut 12 í Reykjanesbæ.

Íbúðin skiptist í forstofu með fataskáp, eldhús með snyrtilegri innréttingu og stofu í sameiginlegu rými þar sem gengið er út á litla verönd, þrjú svefnherbergi með fataskápum, baðherbergi með baðkari/sturtuaðstöðu og þvottahús. Flísar eru á gólfum í alrými og á baðherbergi en parket er í svefnherbergi.

Athugið að myndir eru af sambærilegri íbúð í húsinu.

Gæludýr eru leyfð í íbúðinni.

Leiguverð er kr. 355.000,- á mánuði. Hiti er innifalinn í leiguverði en rafmagn er greitt af leigutaka.

Leigusamningur er gerður til 36 mánaða með möguleika á framlengingu.
Trygging nemur 2-3 mánaða leigu, fer eftir tegund tryggingar.

Áhugasamir eru hvattir til þess að bóka skoðun með því að senda tölvupóst á al@al.is.

Ef þú hefur áhuga á að sækja um íbúðina biðjum við þig að senda okkur umsókn með því að smella á hnappinn hér að ofan.

Endilega hafðu samband við okkur á al@al.is ef einhverjar spurningar vakna.

Hlökkum til að heyra frá þér.

Dalsbraut 12, 260 Reykjanesbæ

Fjölbýlishús

98m2· 4 herbergi

Laus núna

Ásett verð

355.000 kr.

Hverfið