Laus til leigu 3ja herbergja, 97 fm íbúð á annari hæð við Lækjartún 8 á Akureyri.
Gengið er inn um sérinngang í flísalagða forstofu með fataskáp. Stofan er opin með eldhúskrók. Parket er á gólfum og snyrtilegar innréttingar. Gengið er úr stofu út á svalir. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni með góðum skápum og parketi á gólfum. Baðherbergi er flísalagt með baðkari, sturtuaðstöðu og snyrtilegri innréttingu. Þvottahús er flísalagt og inn af þvottahúsi er geymsla.
Athugið að myndirnar í auglýsingunni eru ekki af umræddri íbúð en gólfefni og innréttingar eru sambærilegar.
Leiguverðið er kr. 271.000,- á mánuði. Hiti og hússjóður er innifalinn í leigu en rafmagn greiðist af leigutaka.
Áhugasamir eru hvattir til þess að bóka skoðun með því að senda tölvupóst á al@al.is.
Ef þú hefur áhuga á að sækja um íbúðina biðjum við þig að senda okkur umsókn með því að smella á hnappinn hér að ofan.
Endilega hafðu samband við okkur á al@al.is ef einhverjar spurningar vakna.
Hlökkum til að heyra frá þér.