Íbúð
Tegund
101 Reykjavík
Staðsetning
80m2
Stærð
3
Herbergi
382.000 kr.
Verð á mánuði
Strax
Laus frá
Glæsileg íbúð við Hverfisgötu 61 í Reykjavík laus til leigu. Um er að ræða mjög vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð.
Íbúðin skiptist í stofu og eldhús í sama rými, baðherbergi með sturtu og tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum.
Íbúðinni fylgir geymsla, afnot af þvottahúsi og sameiginleg hjólageymsla.
Leiguverð er kr. 382.000.- á mánuði. Hiti er innifalinn í leiguverði en rafmagn er greitt af leigutaka.
Leigusamningur er gerður til 36 mánaða með möguleika á framlengingu.
Trygging nemur 2-3 mánaða leigu, fer eftir tegund tryggingar.
Áhugasamir eru hvattir til þess að bóka skoðun með því að senda tölvupóst á al@al.is.
Ef þú hefur áhuga á að sækja um íbúðina biðjum við þig að senda okkur umsókn með því að smella á hnappinn hér að ofan.
Endilega hafðu samband við okkur á al@al.is ef einhverjar spurningar vakna.
Hlökkum til að heyra frá þér.
Fjölbýlishús
80m2· 3 herbergi
Laus núna
Ásett verð
382.000 kr.