Glæný og stórglæsileg þriggja herbergja, 77 fm íbúð á annari hæð með sérinngangi.
Gengið er inn í anddyri, 6 fm með stórum og góðum fataskáp. 6 fm baðherbergi með flísum á gólfi og góðri sturtu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús og stofa í sameiginlegu rými, 24 fm þar sem gengið er út á 5 fm svalir sem snýr í vestur. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél er í eldhúsi.
Frá stofu er gengið inn í tvö svefnherbergi, 10 og 11 fm með góðu skápaplássi í báðum herbergjum. Íbúðin er leigð út með gardínum í gluggum.
Geymsla, 4 fm fylgir íbúðinni. Bílastæði í kjallara fylgir ekki íbúðinni.
Reykingar og dýrahald er ekki leyfilegt í íbúðinni.
Leiguverð kr. 380.000.- á mánuði. Hiti er innifalinn í leiguverði en rafmagn greiðist af leigutaka.
Leigusamningur er gerður til 36 mánaða með möguleika á framlengingu.
Trygging nemur 2-3 mánaða leigu, fer eftir tegund tryggingar.
Áhugasamir eru hvattir til þess að bóka skoðun með því að senda tölvupóst á al@al.is.
Ef þú hefur áhuga á að sækja um íbúðina biðjum við þig að senda okkur umsókn með því að smella á hnappinn hér að ofan.
Endilega hafðu samband við okkur á al@al.is ef einhverjar spurningar vakna.
Hlökkum til að heyra frá þér.