Glæný og stórglæsileg þriggja herbergja, 83 fm íbúð á annari hæð með sérinngangi.
Gengið er inn í anddyri með góðum fataskáp og fallegu útsýni yfir Garðabæ.
Úr anddyri er gengið inn í 10 fm svefnherbergi með góðum skáp og fallegu útsýni. Baðherbergi, 6 fm með sturtu og tengi fyrir þvottavél. Svefnherbergi, 15 fm með stórum og góðum fataskáp.
Eldhús og stofa í sameiginlegu rými, 25,4 fm þar sem gengið er út á 8,8 fm verönd.
Í eldhúsi er innbyggður ísskápur og pláss fyrir uppþvottavél.
Parket er á gólfum. Íbúðin er leigð út með gardínum í gluggum.
Geymsla, 6 fm fylgir íbúðinni.
Reykingar og dýrahald er ekki leyfilegt í íbúðinni.
Leiguverð er kr. 385.000,- á mánuði. Hiti er innifalinn í leiguverði en rafmagn greiðist af leigutaka. Farið er fram á tveggja mánaða tryggingu.
Áhugasamir eru hvattir til þess að bóka skoðun með því að senda tölvupóst á al@al.is.
Ef þú hefur áhuga á að sækja um íbúðina biðjum við þig að senda okkur umsókn með því að smella á hnappinn hér að ofan.
Endilega hafðu samband við okkur á al@al.is ef einhverjar spurningar vakna.
Hlökkum til að heyra frá þér.