Glæný og stórglæsileg tveggja herbergja 50,4 fm íbúð á þriðju hæð með sérinngangi.
Gengið er inn í anddyri með stórum og góðum fataskáp. 6,6 fm baðherbergi með flísum á gólfi og góðri sturtu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús og stofa í sameiginlegu rými, 20,2 fm þar sem gengið er út á 5,5 fm svalir sem sýr í norðvestur. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél er í eldhúsi.
Frá stofu er komið inn í svefnherbergi, 10,9 fm með góðu skápaplássi. Parket er á gólfum. Íbúðin er leigð út með gardínum í gluggum.
Geymsla, 3,8 fm fylgir íbúðinni.
Reykingar og dýrahald er ekki leyfilegt í íbúðinni.
Leiguverð er kr. 315.000,- á mánuði. Hiti er innifalinn í leiguverði en rafmagn greiðist af leigutaka.
Áhugasamir eru hvattir til þess að bóka skoðun með því að senda tölvupóst á al@al.is.
Ef þú hefur áhuga á að sækja um íbúðina biðjum við þig að senda okkur umsókn með því að smella á hnappinn hér að ofan.
Endilega hafðu samband við okkur á al@al.is ef einhverjar spurningar vakna.
Hlökkum til að heyra frá þér.