Alma - Tjarnabraut 20

Tjarnabraut 20

Íbúð

Tegund

260 Reykjanesbæ

Staðsetning

91m2

Stærð

3

Herbergi

330.000 kr.

Verð á mánuði

Strax

Laus frá

Laus til leigu 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngang við Tjarnabraut 20 í Reykjanesbæ.

Íbúðin skiptist í anddyri með fataskáp. Tvö svefnherbergi með fataskápum og parketi á gólfum. Nýuppgert eldhús og baðherbergi með baðkari og sturtuaðstöðu. Flísar eru í eldhúsi en parket í alrými. Þvottahús og geymsla eru inn af íbúðinni. Sameiginleg hjólageymsla er við húsið.

Leiguverð er kr. 330.000,-. Hiti er innifalinn í leigu en rafmagn greiðist af leigutaka.

Leigusamningur er gerður til 13 mánaða með möguleika á framlengingu.
Trygging nemur 2-3 mánaða leigu, fer eftir tegund tryggingar.

Áhugasamir eru hvattir til þess að bóka skoðun með því að senda tölvupóst á al@al.is.

Ef þú hefur áhuga á að sækja um íbúðina biðjum við þig að senda okkur umsókn með því að smella á hnappinn hér að ofan.

Endilega hafðu samband við okkur á al@al.is ef einhverjar spurningar vakna.

Hlökkum til að heyra frá þér.

Tjarnabraut 20, 260 Reykjanesbæ

Fjölbýlishús

91m2· 3 herbergi

Laus núna

Ásett verð

330.000 kr.

Hverfið