Stórglæsileg þriggja herbergja, 92,9 fm íbúð á fyrstu hæð með sérinngangi.
Gengið er inn í anddyri með stórum og góðum fataskáp. Á vinstri hönd eru góðar svalir 9,3 fm. Gangur þar sem gengið er inn í tvö svefnherbergi, 12,6 fm og 8,1 fm með góðum fataskápum og baðherbergi 6,5 fm með sturtu og tengi fyrir þvottavél.
Eldhús og stofa í sameiginlegu rými, 33,5 fm þar sem gengið er út á 4,4 fm verönd sem snýr í norðvestur. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél er í eldhúsi sem og stór og falleg eyja með góðu skápaplássi.
Ath. myndir eru af sambærilegri íbúð í húsinu.
Geymsla, 4,9 fm fylgir íbúðinni. Bílastæði í kjallara fylgir íbúðinni.
Reykingar og dýrahald er ekki leyfilegt í íbúðinni.
Leiguverð er kr. 400.000,- á mánuði. Hiti er innifalinn í leiguverði en rafmagn greiðist af leigutaka.
Leigusamningur er gerður til 36 mánaða með möguleika á framlengingu.
Trygging nemur 2-3 mánaða leigu, fer eftir tegund tryggingar.
Áhugasamir eru hvattir til þess að bóka skoðun með því að senda tölvupóst á al@al.is.
Ef þú hefur áhuga á að sækja um íbúðina biðjum við þig að senda okkur umsókn með því að smella á hnappinn hér að ofan.
Endilega hafðu samband við okkur á al@al.is ef einhverjar spurningar vakna.
Hlökkum til að heyra frá þér.