Glæný og stórglæsileg þriggja herbergja, 97,5 fm íbúð á þriðju hæð með sameiginlegum inngangi.
Komið er inn í sameiginlegt anddyri, 9,2 fm. Út frá anddyri er gangur þar sem gengið er út á svalir, 9,3 fm og tvö svefnherbergi, 8,1 fm og 13 fm. Baðherbergi, 6,1 fm með flísum á gólfi og góðri sturtu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Eldhús og stofa í sameiginlegu rými, 33,1 fm þar sem gengið er út á svalir, 4,4 fm. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél er í eldhúsi.
Parket er á gólfum. Íbúðin er leigð út með gardínum í gluggum.
Myndir koma inn á næstu dögum.
Geymsla, 5,7 fm fylgir íbúðinni. Bílastæði í kjallara fylgir íbúðinni.
Reykingar og dýrahald er ekki leyfilegt í íbúðinni.
Leiguverð er kr. 390.000.- á mánuði. Hiti er innifalinn í leigu en rafmagn greiðist af leigutaka. Farið er fram á tveggja mánaða tryggingu.
Áhugasamir eru hvattir til þess að bóka skoðun með því að senda tölvupóst á al@al.is.
Ef þú hefur áhuga á að sækja um íbúðina biðjum við þig að senda okkur umsókn með því að smella á hnappinn hér að ofan.
Endilega hafðu samband við okkur á al@al.is ef einhverjar spurningar vakna.
Hlökkum til að heyra frá þér.