Glæný og stórglæsileg 2ja herbergja, 50,4 fm íbúð á jarðhæð.
Gengið er inn í anddyri. Á hægri hönd er baðherbergi, 4 fm, með sturtu og tengi fyrir þvottavél og á vinstri hönd er svefnherbergi, 8,9 fm með góðum fataskáp.
Eldhús og stofa í sameiginlegu rými, 23,3 fm þar sem gengið er út á 4,3 fm svalir sem snúa til suðurs.
Í eldhúsi er falleg og snyrtileg innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Íbúar hafa aðgang að sameiginlegum þakgarði sem snýr í suður og er að hluta til yfirbyggður.
Geymsla, 4,8 fm fylgir íbúðinni. Reykingar og dýrahald er ekki leyfilegt í íbúðinni.
Leiguverð er kr. 325.000,- á mánuði. Hiti er innifalinn í leiguverði en rafmagn greiðist af leigutaka.
Leigusamningur er gerður til 36 mánaða með möguleika á framlengingu.
Trygging nemur 2-3 mánaða leigu, fer eftir tegund tryggingar.
Áhugasamir eru hvattir til þess að bóka skoðun með því að senda tölvupóst á al@al.is.
Ef þú hefur áhuga á að sækja um íbúðina biðjum við þig að senda okkur umsókn með því að smella á hnappinn hér að ofan.
Endilega hafðu samband við okkur á al@al.is ef einhverjar spurningar vakna.
Hlökkum til að heyra frá þér.