Laus til leigu björt og nýleg 83 fm íbúð við Kjarnagötu 46 á Akureyri.
Um er að ræða mjög vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á annari hæð í þriggja hæða fjölbýli.
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Úr eldhúsi er gengið út á svalir. Flísar eru á gólfum í forstofu, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu. Plastparket er á gólfum í öðrum rýmum. Vandaðar innréttingar eru í eldhúsi og á baðherbergi. Fataskápar eru í svefnherbergjum og forstofu.
Athugið að myndir eru ekki af umræddri íbúð en gólf og innrétting og gólfefni eru sambærileg.
Leiguverð er kr. 320.000,- á mánuði. Innifalið í leiguverði er hiti en rafmagn greiðist af leigutaka.
Áhugasamir eru hvattir til þess að bóka skoðun með því að senda tölvupóst á al@al.is.
Ef þú hefur áhuga á að sækja um íbúðina biðjum við þig að senda okkur umsókn með því að smella á hnappinn hér að ofan.
Endilega hafðu samband við okkur á al@al.is ef einhverjar spurningar vakna.
Hlökkum til að heyra frá þér.