Alma - Elliðabraut 6

Elliðabraut 6

Íbúð

Tegund

110 Reykjavík

Staðsetning

51m2

Stærð

2

Herbergi

313.000 kr.

Verð á mánuði

Strax

Laus frá

Laus til leigu tveggja herbergja 47,3 fm íbúð á annari hæð með sérinngangi við Elliðabraut 6 í Norðlingaholti.

Gengið er inn í anddyri með stórum og góðum fataskáp. 6 fm baðherbergi með flísum á gólfi og góðri sturtu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Eldhús og stofa í sameiginlegu rými, 18 fm þar sem gengið er út á svalir sem snúa í norðvestur. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél er í eldhúsi. Frá stofu er komið inn í svefnherbergi, með góðu skápaplássi. Parket er á gólfum.

Geymsla, 4 fm fylgir íbúðinni. Bílastæði í kjallara fylgir ekki íbúðinni.

Reykingar og dýrahald er ekki leyfilegt í íbúðinni.

Leiguverð er kr. 313.000.- á mánuði. Hiti er innifalinn í leiguverði en rafmagn greiðist af leigutaka. Farið er fram á tveggja mánaða tryggingu.

Áhugasamir eru hvattir til þess að bóka skoðun með því að senda tölvupóst á al@al.is.

Ef þú hefur áhuga á að sækja um íbúðina biðjum við þig að senda okkur umsókn með því að smella á hnappinn hér að ofan.

Endilega hafðu samband við okkur á al@al.is ef einhverjar spurningar vakna.

Hlökkum til að heyra frá þér.

Elliðabraut 6, 110 Reykjavík

Fjölbýlishús

51m2· 2 herbergi

Laus núna

Ásett verð

313.000 kr.

Hverfið