Alma íbúðafélag | Verðskrá

Verðskrá

Hér er að finna verðskrá Ölmu fyrir ýmsa þjónustu sem getur fallið til í upphafi, við lok og á meðan leigutími varir.

Staðfestingar- og umsýslugjald - 39.900 kr.

Staðfestingar- og umsýslugjald er rukkað í upphafi nýs samnings. Þetta á við þegar nýr viðskiptavinur byrjar að leigja hjá okkur.
Innifalið í gjaldinu er kostnaður sem hlýst af umsóknarferlinu, framkvæmd skoðunarúttektar, gerð ástandsskýrslu, samningsgerð og skjalavinnsla.

Ef viðkomandi hættir við að leigja eignina, er gjaldið ekki endurgreiðanlegt.

Nafnabreyting - 9.900 kr.

Við heimilum nafnabreytingu á leigusamningi í kjölfar skilnaðar, breyttrar greiðslugetu og/eða vegna annarra óvæntra atvika. Nýr aðili að leigusamningi samþykkir þá að taka við samningi í þeirri mynd sem hann er og tekur við öllum þeim skyldum sem á fyrri viðskiptavini hvíla. Nafnabreytingargjald er ekki rukkað í kjölfar fráfalls maka eða meðleigjanda.


Seðilgjald - 350 kr.

Leigusali sendir leigjanda í öllum tilfellum rafrænan greiðsluseðil í netbanka. Meðfram leigu er innheimt seðilgjald samkvæmt gjaldskrá.

Nýtt afrit af frumriti - 900 kr.

Óskir þú einhverra hluta vegna eftir nýju frumriti af leigusamningi er ekkert mál að koma til okkar og fá slíkt.

Flutningsgjald - 89.900 kr.

Flutningsgjald er innheimt þegar viðskiptavinur flytur sig milli íbúða innan eignasafns okkar. Gjaldið er greitt til að ljúka gildandi samningi og fella niður uppsagnarfrest, en innifalið í því er einnig skoðunargjald og umsýslukostnaður við gerð nýs samnings fyrir nýju íbúðina. Ef minna en mánuður er eftir af gildandi samningi förum við einungis fram á að umsýslugjald sé greitt.

Þrifagjald við skil á íbúð - 39.900 kr. - 74.900 kr.

Við lok leigutímabils, þegar leigjandi flytur úr íbúð, er innheimt þrifagjald sem stendur undir hluta af kostnaði við alhliða hreingerningu. Þrifin eru unnin af fagaðila og tryggja að íbúðin sé fullbúin, hrein og tilbúin fyrir næsta leigjanda. Alma greiðir hluta kostnaðarins og er þrifagjaldið því hluti af þeirri þjónustu sem tryggir jafnræði og gæði í afhendingu íbúða.

Athugið: Leigjanda er ekki skylt að framkvæma þrif við skil íbúðar. Hins vegar er óheimilt að skilja eftir húsgögn eða aðra muni, og leggst í slíkum tilbikum á sérstakt förgunargjald.

Gjaldskrá þrifa:

0 - 45m² - 39.900 kr.
46 - 70m² - 45.900 kr.
71 - 100 m² - 56.900 kr.
+100m² - 74.900 kr.

Förgunargjald - 20.000 kr. +

Ef leigjandi skilur eftir húsgögn eða aðra muni í íbúð við skil, leggst á förgunargjald samkvæmt eftirfarandi:

  • Lágmarksgjald: 20.000 kr.
    • Gildir fyrir einn hlut undir 1 rúmmetra (t.d. lítill stóll, náttborð eða sambærilegt).
  • Viðbótargjald: 20.000 kr. fyrir hvern rúmmetra umfram það.
    • Dæmi: Ef skilin ná til rúmlega 2 rúmmetra (t.d. sófi og borð), nemur gjaldið kr. 60.000.

Gjaldskráin er sett til að hvetja til skilvísra skila og koma í veg fyrir að hlutir séu skildir eftir í íbúðinni.

Tegundir leigusamninga