Laus til leigu ný og björt 75,9 fm íbúð við Hverfisgötu 61 í Reykjavík. Um er að ræða mjög vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sér inngangi. Þetta er glæsileg íbúð í hjarta höfuðborgarinnar þar sem stutt er í alla þjónustu.
Íbúðin skiptist í opna stofu og eldhús í sama rými, baðherbergi með sturtu og tvö rúmgóð svefnherbergi með skápum, afnot af þvottahúsi og sameiginleg hjólageymsla.
Athugið að ekki er hægt að skrá lögheimili á eignina eða sækja um húsaleigubætur.
Leiguverðið er kr. 330.000,- á mánuði. Hiti er innifalinn í leigu en rafmagn greiðist af leigutaka.
Leigusamningur er gerður til 36 mánaða með möguleika á framlengingu.
Trygging nemur 2-3 mánaða leigu, fer eftir tegund tryggingar.
Áhugasamir eru hvattir til þess að bóka skoðun með því að senda tölvupóst á al@al.is.
Ef þú hefur áhuga á að sækja um íbúðina biðjum við þig að senda okkur umsókn með því að smella á hnappinn hér að ofan.
Endilega hafðu samband við okkur á al@al.is ef einhverjar spurningar vakna.
Hlökkum til að heyra frá þér.