Laus til leigu frá 01.05.22 með fyrirvara um breytingar.
Glæný og stórglæsileg þriggja herbergja, 92,9 fm íbúð á annari hæð með sérinngangi.
Gengið er inn í anddyri, 5,6 fm með stórum og góðum fataskáp. Á hægri hönd eru tvö svefnherbergi, 9 fm og 16,7 fm með góðu skápaplássi í báðum herbergjum.
6,5 fm baðherbergi með flísum á gólfi og góðri sturtu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús og stofa í sameiginlegu rými, 38,3 fm þar sem gengið er út á 4,4 fm svalir sem snúa í vestur. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél er í eldhúsi.
Íbúðin er leigð út með gardínum í gluggum.
Geymsla, 3,4 fm fylgir íbúðinni. Bílastæði í kjallara fylgir íbúðinni.
Reykingar og dýrahald er ekki leyfilegt í íbúðinni.
Leiguverð kr. 380.000.- á mánuði. Hiti og hússjóður er innifalinn í leiguverði en rafmagn greiðist af leigutaka. Farið er fram á tveggja mánaða tryggingu.
Laus frá 5. desember 2025
Áhugasamir eru hvattir til þess að bóka skoðun með því að senda tölvupóst á al@al.is.
Ef þú hefur áhuga á að sækja um íbúðina biðjum við þig að senda okkur umsókn með því að smella á hnappinn hér að ofan.
Endilega hafðu samband við okkur á al@al.is ef einhverjar spurningar vakna.
Hlökkum til að heyra frá þér.