Alma - Elliðabraut 4

Elliðabraut 4

Íbúð

Tegund

110 Reykjavík

Staðsetning

90m2

Stærð

3

Herbergi

378.000 kr.

Verð á mánuði

Strax

Laus frá

Glæný og stórglæsileg þriggja herbergja, 87,2 fm íbúð á annari hæð. Gengið er inn í íbúðina er úr sameiginlegum stigagangi.
Komið er inn í sameiginlegt rými, stofu og eldhús. Góður fataskápur er við inngang íbúðarinnar.
Eldhús og stofa í sameiginlegu rými, 35,7 fm þar sem gengið er út á 8,4 fm svalir sem snúa í norðvestur inn í port hússins. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél er í eldhúsi. 5,7 fm baðherbergi með flísum á gólfi og góðri sturtu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Tvö svefnherbergi, 14,8 fm hjónaherbergi með góðum fataskápum og 1 fm svölum. Minna herbergið er 14,2 fm með góðum fataskáp. Íbúðin er leigð út með gardínum í gluggum.
Góð lofthæð er í íbúðinni.
Geymsla, 3,5 fm fylgir íbúðinni og bílastæði í bílakjallara.

Reykingar og dýrahald er ekki leyfilegt í íbúðinni.

Ath. myndir eru af sambærilegri íbúð í húsinu.

Leiguverð er kr. 378.000,- á mánuði. Hiti er innifalinn í leiguverði en rafmagn greiðist af leigutaka.

Leigusamningur er gerður til 36 mánaða með möguleika á framlengingu.
Trygging nemur 2-3 mánaða leigu, fer eftir tegund tryggingar.

Áhugasamir eru hvattir til þess að bóka skoðun með því að senda tölvupóst á al@al.is.

Ef þú hefur áhuga á að sækja um íbúðina biðjum við þig að senda okkur umsókn með því að smella á hnappinn hér að ofan.

Endilega hafðu samband við okkur á al@al.is ef einhverjar spurningar vakna.

Hlökkum til að heyra frá þér.

Elliðabraut 4, 110 Reykjavík

Fjölbýlishús

90m2· 3 herbergi

Laus núna

Ásett verð

378.000 kr.

Hverfið