Glæný og stórglæsileg 3ja herbergja, 62,7 fm íbúð á jarðhæð.
Gengið er inn í anddyri. Eldhús og stofa í sameiginlegu rými, 23,7 fm þar sem gengið er út á 10,3 fm verönd sem snýr til norðurs inn í sameiginlegan garð.
Í eldhúsi er falleg og snyrtileg innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Tvö svefnherbergi, 10,8 fm og 8,7 fm með fataskápum. Baðherbergi, 4 fm, með sturtu og tengi fyrir þvottavél.
Geymsla, 5,3 fm fylgir íbúðinni. Reykingar og dýrahald er ekki leyfilegt í íbúðinni.
Leiguverð er kr. 370.000,- á mánuði. Hiti er innifalinn í leiguverði en rafmagn greiðist af leigutaka.
Leigusamningur er gerður til 36 mánaða með möguleika á framlengingu.
Trygging nemur 2-3 mánaða leigu, fer eftir tegund tryggingar.
Áhugasamir eru hvattir til þess að bóka skoðun með því að senda tölvupóst á al@al.is.
Ef þú hefur áhuga á að sækja um íbúðina biðjum við þig að senda okkur umsókn með því að smella á hnappinn hér að ofan.
Endilega hafðu samband við okkur á al@al.is ef einhverjar spurningar vakna.
Hlökkum til að heyra frá þér.