Glæný og stórglæsileg 2ja herbergja, 49,6 fm íbúð á annari hæð.
Gengið er inn í anddyri. Á hægri hönd er svefnherbergi, 9,4 fm með góðum fataskáp og á vinstri hönd er baðherbergi, 4 fm, með sturtu og tengi fyrir þvottavél.
Eldhús og stofa í sameiginlegu rými, 23,6 fm þar sem gengið er út á 5,3 fm svalir sem snúa til norðurs inn í sameiginlegan garð.
Í eldhúsi er falleg og snyrtileg innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Íbúar hafa aðgang að sameiginlegum þakgarði sem snýr í suður og er að hluta til yfirbyggður.
Geymsla, 5,8 fm fylgir íbúðinni. Reykingar og dýrahald er ekki leyfilegt í íbúðinni.
Leiguverð er kr. 325.000,- á mánuði. Hiti er innifalinn í leiguverði en rafmagn greiðist af leigutaka.
Áhugasamir eru hvattir til þess að bóka skoðun með því að senda tölvupóst á al@al.is.
Ef þú hefur áhuga á að sækja um íbúðina biðjum við þig að senda okkur umsókn með því að smella á hnappinn hér að ofan.
Endilega hafðu samband við okkur á al@al.is ef einhverjar spurningar vakna.
Hlökkum til að heyra frá þér.