Alma - Laugavegur 168C

Laugavegur 168C

Íbúð

Tegund

105 Reykjavík

Staðsetning

55m2

Stærð

2

Herbergi

325.000 kr.

Verð á mánuði

Strax

Laus frá

Glæný og stórglæsileg 2ja herbergja, 49,6 fm íbúð á þriðju hæð.
Gengið er inn í anddyri. Á hægri hönd er svefnherbergi, 9,4 fm með góðum fataskáp og á vinstri hönd er baðherbergi, 4 fm, með sturtu og tengi fyrir þvottavél.
Eldhús og stofa í sameiginlegu rými, 23,6 fm þar sem gengið er út á 4,3 fm svalir sem snúa til norðurs inn í sameiginlegan garð.
Í eldhúsi er falleg og snyrtileg innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.

Geymsla, 5,6 fm fylgir íbúðinni. Reykingar og dýrahald er ekki leyfilegt í íbúðinni.

Leiguverð er kr. 325.000,- á mánuði. Hiti er innifalinn í leiguverði en rafmagn greiðist af leigutaka.

Leigusamningur er gerður til 36 mánaða með möguleika á framlengingu.
Trygging nemur 2-3 mánaða leigu, fer eftir tegund tryggingar.

Áhugasamir eru hvattir til þess að bóka skoðun með því að senda tölvupóst á al@al.is.

Ef þú hefur áhuga á að sækja um íbúðina biðjum við þig að senda okkur umsókn með því að smella á hnappinn hér að ofan.

Endilega hafðu samband við okkur á al@al.is ef einhverjar spurningar vakna.

Hlökkum til að heyra frá þér.

Laugavegur 168C, 105 Reykjavík

Fjölbýlishús

55m2· 2 herbergi

Laus núna

Ásett verð

325.000 kr.

Hverfið